Holufylling
Úti er ljúf og leikandi gola, líður um gengin spor Þarna er lagleg og lymskuleg hola, lagaðu hana senjor Á bílnum ég stunda nú stór(kostlegt)svig, streitist á móti - HEI, HOLA! Ef fyllt hún er, þakka ég fyrir hann mig, og fæ mér vatn til að skola.
Höf. Hallur Guðmundsson - kaupfjelagsstjóri
Um ljóðið
Ljóðið varð til við akstur á undarlegum vegi. Holur á hverju strái og engar lausnir að sjá. Það var meiri líkamsrækt að snúa stýrinu en á góðum degi í ræktinni.

